Landsfréttir | 26. febrúar 2010 | 12:43:28
Leyfi veitt fyrir fiskeldi upp í miðri hlíð
Heilbrigðiseftirlit Vestfjarða hefur gefið út níu starfsleyfi til kvíaeldis laxfiska í sjó í Arnarfirði. Um er ræða starfsleyfi til að stunda fiskeldi við strendur landsins. Hagsmunaaðilar hafa mótmælt því að ekki séu gerðar meiri kröfur fyrir slíkar leyfisveitingar og segja þær vera komnar í óefni en eins og fram hefur komið hafa tvö fyrirtæki sótt um stuðning yfirvalda við áætlanir sínar um fiskeldi í sveitarfélaginu. „Menn leggja ekki upp í milljarða framkvæmdir nema að það sé hreinsað til hér í firðinum og víðar. Sem dæmi um leyfisveitingar þá var aðili hér í bæ sem sótti um svona leyfi og sló inn vitlaust hnit og það var samþykkt hjá Heilbrigðiseftirliti Vestfjarða. En þetta hnit er upp í miðri hlíð hjá flugvellinum í Arnarfirði,“ segir Jón Hákon Ágústsson, bæjarfulltrúi í Vesturbyggð. Lögð voru fram drög að bókun á síðasta bæjarstjórnarfundi en fyrirtöku málsins var frestað.
Sjá nánar frétt á www.bb.is
Vinsamlegast afritið kóðann hér að neðan: