Landsfréttir | 26. febrúar 2010 | 11:18:11
Fær fingurkossa fyrir ljós á göngugrindinni

„Ég veit ekki hvað ég hef fengið mörg vink og marga fingurkossa frá kvenfólkinu sem keyrir bílana eftir að ég setti ljósin á göngugrindina," segir Helgi Pálmarsson, 76 ára göngugarpur í Reykjavík.

Helgi segist hafa viljað auka öryggi sitt þegar hann fari út að ganga. Hann hafi keypt sér ljósabúnað í Markinu og starfsmenn verslunarinnar fest búnaðinn á fyrir hann. Eitt ljós vísi aftur og annað fram. Ljósin gangi fyrir rafhlöðum og eigi að endast í allt að eitt þúsund klukkustundir.

„Ég læt ljósið alltaf vera hægra megin við mig og geng beint á móti umferðinni. Þetta sést langan veg," útskýrir Helgi sem kveður ljósin þegar hafa sannað notagildi sitt.

Sjá nánar á visir.is