Landsfréttir | 18. febrúar 2010 | 08:46:23
Krókaaflamarksbátar búnir að veiða 89% af heimildum í ýsu
Þrátt fyrir að fiskveiðiárið sé ekki hálfnað hafa krókaaflamarksbátar veitt 89% af heimildum sínum í ýsu. Staða fjölmargra útgerða er orðin grafalvarleg, þar sem erfiðlega gengur að nýta þorskinn öðru vísi en að fá ýsu með. Það stefnir því í stöðvun útgerða hjá fjölmörgum aðilum. Afleiðingar eru margvíslegar, atvinna hundruða sjómanna í húfi, afkoma tuga útgerða og yfirvofandi skortur á ýsu á markaði sem gefa hæstu verðin.
Ástæður þess að skortur á veiðiheimildum í ýsu blasir nú við eru einkum þær að úthlutun var minnkuð um þriðjung og afar erfitt er að fá leigðan ýsukvóta frá stórútgerðinni. Það sem af er ári hafa krókaaflamarksbátar leigt til sín 1.403 á móti 2.900 tonnum á sama tíma í fyrra.
Margir hafa furða sig á tregðu stórútgerðarinnar að leigja frá sér. Þar er einkum bent á tvö atriði. Annars vegar að stórútgerðin hefur aðeins veitt 30% af veiðiheimildum sínum í ýsu og hins vegar að yfirvofandi er lagabreyting sem minnkar geymslurétt úr 33% í 15%.
Frétta af vef Landssambands smábátaeigenda
Vinsamlegast afritið kóðann hér að neðan: