Landsfréttir | 17. febrúar 2010 | 16:05:53
Vill kortleggja ólöglegt niðurhal
Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra ætlar að láta kortleggja umfangið á ólöglegu niðurhali hugverka. Ráðherra sagði á Alþingi í dag að þetta væri gríðarlega stórt verkefni enda væri oft erfitt að greina muninn á löglegu og ólöglegu niðurhali.
Ráðherra tók fram að landamæri netsins væru önnur en þau sem við venjulega styðjum okkur við. Ráðherra var þar með að svara fyrirspurnum Guðlaugs Þórs Þórðarsonar alþingismanns um þetta efni en hann sagði að mikið væri um það að ungt fólk halaði efni niður.
Frétt af www.ruv.is
Vinsamlegast afritið kóðann hér að neðan: