Landsfréttir | 17. febrúar 2010 | 09:19:58
Sprengjugengið með háskasýningar í Háskólabíó
Djarfur hópur efnafræðinema við Háskóla Íslands, sem gengur undir nafninu Sprengjugengið, verður með tvær háskasýningar í Háskólabíó næstkomandi laugardag. Fyrri sýningin er klukkan 13 og sú seinni klukkustund síðar.
Sprengjugengi Háskóla Íslands hefur vakið landsathygli fyrir magnaðar efnafræðisýningar á heimsmælikvarða. Sérfræðingarnir í Sprengjugenginu eru þekktir fyrir að skapa efnabrellusýningar sem láta áhorfendur gjarnan gapa af óttablandinni undrun.
Þegar Sprengjugengið er á ferðinni upplifa áhorfendur ótrúlegar litasjónhverfingar, óvenjulegar gastegundir á sveimi og ógurlegar sprengingar sem kitla hlustirnar.
Þetta er þriðja árið í röð sem Sprengjugengið mætir í Háskólabíó en í fyrra fyllti gengið í tvígang stóra kvikmyndasýningasalinn í Háskólabíói.
Sýning Sprengjugengisins er í tengslum við Háskóladaginn og námskynningu Háskóla Íslands sem fram fer á Háskólatorgi, í Gimli og Odda á laugardaginn. Þá munu fræðasvið HÍ kynna allar námsleiðir í grunnnámi sem boðnar verða nemendum á næsta skólaári. Á sama tíma kynna allir aðrir háskólar á landinu námsframboð sitt í Ráðhúsinu í Reykjavík. Danskir og sænskir háskólar kynna einnig framhaldsnám í Norræna húsinu.
Aðgangur að sýningu Sprengjugengisins er ókeypis.
Frétt af www.visir.is
Vinsamlegast afritið kóðann hér að neðan: