Landsfréttir | 16. febrúar 2010 | 10:28:32
Færri ökutæki nýskráð á fyrstu dögum ársins
Færri ökutæki hafa verið nýskráð hjá Umferðarstofu það sem af er árinu í samanburði við sama tímabil í fyrra. Frá 1. janúar til 15. febrúar hafa 316 ökutæki verið nýskráð en þau voru 444 eftir jafn langt tímabil á síðasta ári. Þetta er rétt tæplega 29% færri ökutæki milli ára. Tekið skal fram að hér er um að ræða allar tegundir skráðra ökutækja.
Eigendaskiptum ökutækja hefur einnig fækkað töluvert það sem af er árinu en það sem var á sama tímabili í fyrra. Á fyrstu 45 dögum ársins hafa 6.861 eigendaskipti verið gerð á ökutækjum samanborið við 9.247 eigendaskipti eftir jafn marga daga á síðasta ári. Þetta er 26% fækkun milli ára.
Frétt af vef Umferðarstofu.
Vinsamlegast afritið kóðann hér að neðan: