Landsfréttir | 8. febrúar 2010 | 09:25:15
Guðslán að vera lifandi

„Ég fór fimm veltur og það var guðslán að ég slapp ómeiddur en það eru þúsund englar sem vaka yfir mér,“ segir þingmaðurinn Árni Johnsen í viðtali við DV í dag. Hann lenti á dögunum í bílveltu á Toyota jeppabifreið sinni, nærri Litlu Kaffistofunni, og í gegnum huga hans flugu hugsanir að þetta gæti verið hans síðasta.


„Vissulega var ég lurkum laminn en mér bregður eiginlega aldrei. Í hverri veltu reyndi ég að hnipra mig niður og var eiginlega hissa á því sem var að eiga sér stað. Þetta var þannig að það fór í gegnum hugann hvort þetta væri mitt síðasta,“ segir Árni við DV.