Landsfréttir | 3. febrúar 2010 | 09:48:31
Metverð á þriðjudegi

Verð á óslægðum þorski og ýsu var það hæsta frá áramótum sl. þriðjudag 26. janúar.   Þetta kom í ljós í vikulegri samantekt LS yfir tímabilið 23. janúar til 29. janúar.

Meðalverð á þorskinum þennan dag var 353 kr/kg og á ýsu 333 kr/kg. Það hefur eflaust hjálpað til að framboð var lítið, sem sýndi sig á næstu þrem dögum þegar framboð jókst mikið og verðið gaf eftir.  Þannig seldist ýsan á 273 á föstudeginum og þorskurinn var á 312 krónur.

Sjá frétt á vef Landssambands smábátaeigenda.