Landsfréttir | 1. febrúar 2010 | 11:14:03
Þarf að búa við ómennsk kynlífsóhljóð

DV greinir í dag frá hugarangri konu sem býr á fyrstu hæð í þríbýli í vesturbæ Reykjavíkur. Á efstu hæðinni býr ungt par sem stundar kynlíf með þvílíkum óhljóðum að gestkomandi börn héldu að verið væri að slíta í sundur kött.

Konan segir öskrin og veinin á efstu hæðinni af ómennskum toga og hefur ritað bréf til formanns húseigendafélagsins vegna málsins. Hún vill athuga réttarstöðu sína.

Sjá nánar á dv.is hér

---


Mynd/Hver vill búa við kynlífshljóð nágranna sinna?