Landsfréttir | 26. janúar 2010 | 22:09:48
Auglýsingar á áfengi leyfðar, hærra verð og áfengiskaupaaldri breytt

Pressan.is // Starfshópur um heildarendurskoðun á áfengislöggjöfinni á vegum fjármálaráðherra leggur til að áfengisauglýsingar verði heimilaðar, en með miklum takmörkunum. Lagt er til að áfengiskaupaaldur verði endurskoðaður í samræmi við önnur réttindi. Þá telur starfshópurinn frekara svigrúm til hækkunar áfengisgjalds og útilokar að áfengi verði selt í smásölu.


Starfshópnum var falið að leggja mat á lagaumhverfi ÁTVR, skattlagningu á áfengi, áfengisauglýsingar og markaðssetningu áfengismála.


Samkvæmt upplýsingum úr fjármálaráðuneytinu er niðurstaða starfshópsins sú að núgildandi löggjöf og markmið hennar endurspegli ekki núverandi framkvæmd og viðhorf til þessa málaflokks, og að stefna stjórnvalda í þessum málaflokki sé óljós. Þörf sé því á nýrri, heildstæðri stefnu.


Það er mat hópsins að óraunhæft sé að koma algjörlega í veg fyrir auglýsingar áfengis. Er þess í stað lagt til að heimila auglýsingar áfengis, með miklum takmörkunum þó. Slíkt væri í samræmi við reglur flestra Norðurlandaþjóða og gerir um leið eftirlit skilvirkara og eyðir þeirri réttaróvissu sem nú ríkir.


Það er jafnframt skoðun hópsins að nauðsynlegt sé að endurskoða áfengiskaupaaldurinn í samræmi við önnur réttindi. Er líklegt að þarna sé verið að leggja til að áfengiskaupaaldur verði lækkaður niður í 18 ár.


Einhver bið verður á því að hægt verði að kaupa áfenga drykki út í búð, því ekki er að mati hópsins æskilegt að afnema einkasölu ríkisins á smásölu áfengis. Þvert á móti leggur hann til að styrkja stöðu ÁTVR.
Hvað varðar almenna skattlagningu á áfengi er það mat hópsins að þó nokkuð svigrúm sé til hækkunar sé miðað við vísitölu neysluverðs. Hópurinn bendir á að skattlagning sé enn fremur sterkasti þátturinn þegar kemur að því að stjórna neyslu áfengis, og því ætti einnig að miða skattlagningu við neyslustýringu í samræmi við stefnu stjórnvalda. Með öðrum orðum, það ætti að hækka áfengisgjaldið.


Hópurinn mun starfa áfram og vinna að undirbúningi frumvarps, sem stefnt er að lagt verði fyrir haustþing á þessu ári.

Þetta kemur fram á vefmiðlinum pressan.is