Landsfréttir | 26. janúar 2010 | 12:39:43
Líkur á sviptingum á skuldabréfamarkaði í dag

Snorri Jakobsson, sérfræðingur hjá IFS greiningu, telur að mikilar sviptingar verði á skuldabréfamarkaði í dag, í kjölfar nýjustu verðbólgumælinga Hagstofunnar. Samkvæmt þeim lækkaði vísitala neysluverðs um 0,31%, sem þýðir að tólf mánaða verðbólga er 6,6%. Þetta kemur fram á mbl.is.

IFS greining hafði búist við því að neysluverðsvísitalan hækkaði um 1,3%. „Ég veit að markaðsaðilar höfðu margir búist við miklum hækkunum. Því má búast við töluverðum látum á skuldabréfamarkaði í dag,“ segir Snorri.

Snorri segir að engin ein skýring sé á misræmi milli spár IFS og niðurstöðu mælinganna núna. „Þetta var bara allt meira og minna lægra en við bjuggumst við,“ segir hann. Hann segir að ef til vill hafi húsnæðisliðurinn lækkað minna en efni voru til síðustu mánuði, en svo komi lækkunin núna í töluverðu stökki. Kostnaður vegna eigin húsnæðis lækkaði um 2,9% og hafði áhrif til lækkunar vísitölunnar um 0,37%.