Landsfréttir | 21. janúar 2010 | 15:37:06
Flugstjórinn fékk ekki réttar upplýsingar um veðrið í Skutulsfirði

Bæjarins besta // www.bb.is // Farþegum flugvélar sem sneri við yfir Skutulsfirði í morgun var boðið upp á áfallahjálp við komuna til Reykjavíkur. Vélin lenti í mikilli ókyrrð þegar flogið var upp úr firðinum eftir að hætt var við lendingu. Samkvæmt upplýsingum frá Flugfélagi Íslands fór vélin af stað frá Reykjavík kl. 10:15 með 23 farþega innanborðs og þriggja manna áhöfn. Í aðflugi inn á Ísafjarðarflugvöll var ákveðið að hætta við lendingu vegna nokkurrar ókyrrðar, þegar vélin hinsvegar flýgur frá Ísafjarðarflugvelli lendir hún í mikilli ókyrrð. Vélinni var síðan flogið til Reykjavíkur þar sem lent var um kl. 11:50.


„Ég hef oft flogið á milli og lent í leiðindaveðri eins og allir aðrir, en þetta var svolítið slæmt,“ segir Geirþrúður Charlesdóttir, einn farþeganna. Ómar Már Jónsson sveitarstjóri Súðavíkurhrepps var einnig í vélinni. „Þegar við lögðum af stað frá Reykjavík var gefið út að það væri suðaustan átt, þegar við vorum svo komin í Ísafjarðardjúp og að undirbúa lendingu kemur allt í einu melding um að það sé komin norðaustan átt. Flugstjórinn ákvað að kanna málið en sagði okkur að hann myndi snúa aftur til Reykjavíkur ef áttin breyttist ekki. En þá er gefið aftur út að komin sé suðaustan átt. Þegar komið var inn í Skutulsfjörðinn og flugvélin er að fara lenda er hætt við og sett í brottfarargírinn en vélin fær á sig tvö högg í vindsveipum við fjallgarðinn sem keyra hana hressilega niður. Það var svo mikið að Morgunblaðið sem var við hliðina á mér var komið í höfuðhæð í frjálsu falli.“


Er flugvélin lenti á Reykjavíkurflugvelli óskaði flugstjórinn eftir fundi með farþegum. „Hann talaði við okkur og bauð þeim sem vildu upp á áfallahjálp. Hann sagði að hann hefði aldrei lagt í það að lenda hefði hann fengið réttar upplýsingar um veðrið,“ segir Geirþrúður. Ómar segir að sér hafi fundist flugstjórinn hafa staðið sig mjög fagmannlega og útskýrt hlutina mjög vel. „Hann sagði að veðrið á flugvellinum hefði alls ekki verið eins og honum hafði verið sagt. Ég hef sjálfur lært einkaflugmanninn og vissi að það var aldrei nein hætta á ferðum en þetta var verulega óþægileg tilfinning að lenda í svona og ég get vel ímyndað mér að þeir sem ekki eru vanir að fljúga hafi verið mjög ómótt. Ég flýg oft á milli en þetta var mun meiri ókyrrð en maður á að venjast“


Geirþrúður bendir á að maður frá Ísafirði hefði í gær varað hana við því að fljúga daginn eftir því ekki væri gott að fljúga í þeirri átt sem spáð var. „En ég gerði það og er núna reynslunni ríkari, en þetta sýnir bara að sumir þekkja veðrið betur en aðrir.“

thelma@bb.is