Landsfréttir | 21. janúar 2010 | 09:00:11
Of fá störf í vegagerð

Þær framkvæmdir sem eru í gangi í vegagerð í dag samsvara aðeins á annað hundrað ársverkum. Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambandsins segir allt of lítið sé um framkvæmdir á vegum hins opinbera um þessar mundir. Brýnt að setja aukna fjármuni í slíkar framkvæmdir, það sé hluti af því að vinna sig út úr kreppunni.

Gylfi segir að í því yfirliti sem sambandið hafi fengið hafi komið fram að það væru ekki nema um 105 störf í gangi í vegagerð núna, hugsanlega um 160 störf þegar tekin eru með störf við frágang á vegmunnum og annað.

Gylfi segir þetta ákaflega lítið í heildar umfangi og lítið innlegg í þá erfiðu stöðu sem er í atvinnumálum. Alþýðusambandið hafi verið að kalla eftir því að brugðist verði við með aukningu annarsstaðar, því að öðrum kosti sé útlit fyrir að forsendur fjárlaga standist ekki.  Þá þurfi að horfa í fráviksspá bæði hagdeildar ASÍ og Seðlabanka, sem þýði miklu meiri samdrátt landsframleiðslu á þessu ári heldur en gert hafi verið ráð fyrir.

Frétt af www.ruv.is