Landsfréttir | 20. janúar 2010 | 10:54:36
Eyjamenn sigla í land á morgun

Flest fiskiskip Eyjamanna sigla í land á morgun. Boðað hefur verið til baráttufundar í bænum gegn svokallaðri fyrningarleið ríkisstjórnarinnar, útflutningsálagi á ísfiski, afnámi sjómannaafsláttar og aðför að landsbyggðinni eins og segir í fundarboði. Fundarboðendur, sem eru sjómannafélög, félög útgerðarmanna og Vestmanneyjabær, fullyrða að stór hluti Eyjaflotans sigli í land til að sjómenn geti tekið þátt í fundinum.

Elliði Vignisson bæjarstjóri segir í samtali við fréttastofu RÚV að bæjarstjórn Vestmannaeyja hafi í maí 2009 ályktað gegn fyrningarleið í sjávarútvegi og talið hana jafngilda aðför að atvinnulífi Vestmannaeyja og þar með að byggð í Eyjum

Fréttastofa RÚV  hefur eftir formanni Verðanda í Eyjum að með fyrningaleiðinni svokölluðu sé verið að vinna hrein og klár skemmdarverk á íslenskum sjávarútvegi.

Sjá nánar frétt RÚV hér.