Landsfréttir | 19. janúar 2010 | 13:04:09
Aldraðir fá gefins ýsu
Ýsa var það heillin, sagði kerlingin í þjóðsögunni, og þau orð gætu eldri borgarar á Patreksfirði hafa notað nú í ársbyrjun. Þá fengu allir íbúar Patreksfjarðar, 67 ára og eldri gjafabréf frá Fiskiðjunni Odda upp á fimm kíló af ýsu.
Oddi fór reyndar aðrar leiðir en mörg önnur fyrirtæki varðandi jólaglaðninga hvers konar. Fyrirtækið greiddi öllum starfsmönnum sýnum auka jólabónus í formi sex 5000 króna gjafabréfa sem giltu í allar verslanir á Patreksfirði. Með því vildi fyrirtækið hvetja fólk til að versla í heimabyggð fyrir jólin. Nú á nýárinu bætti Oddi um betur og gaf öllum eldriborgurum ýsu í soðið.
frettir@ruv.is
Vinsamlegast afritið kóðann hér að neðan: