Landsfréttir | 19. janúar 2010 | 12:53:46
Rekstur bæjarsjóðs byggist á álverinu
Í fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar fyrir árið 2010 er lagt upp með þá forsendu að framkvæmdir hefjist fljótlega við nýtt álver í Helguvík og að nokkur önnur verkefni skapi störf sem leiði til þess að útsvarstekjur bæjarins hækki um 680 milljónir og að þannig verði afgangur af rekstri bæjarins 42 milljónir. Minnihlutinn í bæjarstjórn gagnrýnir þetta og segir of snemmt að reikna með tekjum af álverinu enda sé fjármögnun þess ekki tryggð. Mikil þörf er á nýjum atvinnutækifærum á Suðurnesjum en hvergi á landinu er atvinnuleysi meira eða 13,6%. Það þýðir að um 1.500 manns eru atvinnulausir.
Í fjárhagsáætlun fyrir árið 2010 sem meirihluti sjálfstæðismanna hefur samþykkt, er gert ráð fyrir verulega batnandi tíð og að alls muni ný verkefni skapa allt að 2.900 ný störf á Suðurnesjum. Íbúum í Reykjanesbæ muni jafnframt fjölga um 2% en þeim fækkaði um 1% í fyrra. Í áætluninni segir að mörg verkefnanna væru þegar hafin ef ekki hefðu komið til tafir af völdum bankahruns eða aðgerða og aðgerðaleysis ríkisstjórnarinnar. Þá er bent á að í hagvaxtarspá Seðlabankans sé gert ráð fyrir álversframkvæmdum og því eðlilegt að gert sé ráð fyrir að þær skili skatttekjum í bæjarsjóð. Miðað við forsendur í áætluninni er reiknað með að um helmingur mögulegra útsvarstekna skili sér til bæjarins, að því gefnu að öll verkefnin verði að veruleika.
Ekki veitir af álverstekjum heldur af því að öðrum kosti yrði taprekstur upp á mörg hundruð milljónir. Bærinn má illa við því, m.a. í ljósi þess að skuldir nema um 14 milljörðum og skuldbindingar utan efnahags námu í fyrra um 12 milljörðum. (Þær hafa ekki verið uppreiknaðar fyrir næsta ár). Eignir nema um 24 milljörðum.
Ítarlegri fréttaskýring er á mbl.is
Vinsamlegast afritið kóðann hér að neðan: