Q-MEN | 20. mars 2010 | 10:01:41
Notaði sama ráð og Magnús í Latabæ

Magnús Scheving, Latabæjarfrumkvöðull var frábær í fyrirlestri sínum í Virkjun í vikunni. Margt fróðlegt og skemmtilegt kom fram í máli hans. Einn fundargesta, karlmaður á Suðurnesjum, með frumkvöðlahugmynd í vinnslu, tók Magnús á eigin bragði ef svo má segja, eftir fyrirlesturinn.

Magnús sagði nefnilega frá því þegar hann reyndi að fá liðssinni frá Jóni Ásgeiri Jóhannessyni á sínum tíma hafi hann fengið far með honum til Leifsstöðvar, til að ná eingöngu spjalli við hann um málið. Þá var erfitt að ná á Jón Ásgeir. Það gekk og Magnús seldi Jóni Ásgeiri hugmynd.

Eftir fundinn í Virkjun fékk ungi Suðurnesjamaðurinn far með Magnúsi til höfuðborgarsvæðisins, sagðist vera á leið þangað en væri bíllaus. Spjallaði svo helling við Magnús á leiðinni en þegar hann var kominn í bæinn sagðist hann ekki hafa verið á leiðinni í bæinn. Hafi bara viljað spjalla, hlusta og fá ráð frá honum. Hringdi því næst í frúnna til að láta ná í sig til Reykjavíkur. Þakkaði svo Magnúsi fyrir „fundinn“, spjallið og ráðin, þetta myndi allt nýtast honum í frumkvöðlaverkefninu...



Mynd: Frá fyrirlestrinum með Magnúsi Scheving í Virkjun í vikunni. Þar tóku menn vel eftir - svo vel að sjálfur Íþróttaálfurinn féll á eigin bragði...