Fréttir | 15. mars 2010 | 13:40:52
Verjum nemendur fyrir áföllum
- framhaldsskólakennarar álykta
Fulltrúafundur Félags framhaldsskólakennara gerir sér grein fyrir þeim vanda sem íslenskt samfélag á við að etja og óhjákvæmilegum samdrætti í ríkisútgjöldum. Fundurinn leggur fast að stjórnvöldum að forgangsraða faglega í ríkisfjármálunum til næstu ára með það að markmiði að verja nemendur og menntun fyrir áföllum. Skammsýnar ákvarðanir um menntun og skólastarf í landinu geta valdið óbætanlegum skaða. Ungmenni á framhaldsskólaaldri þurfa að geta innritast í nám og lokið því hindrunarlaust. Samfélagið þarf alltaf á fagmennsku kennara að halda - ekki síst núna!
Sjá ályktun hér!
Vinsamlegast afritið kóðann hér að neðan: