Fréttir | 9. nóvember 2009 | 08:48:59
Gagnaver: Samið um skipulag 180 þúsund fermetra svæðis

Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, og Isaac Kato hjá Verne Holdings,hafa undirritað samning um skipulag svæðis undir gagnaver að Ásbrú í Reykjanesbæ.

Samningurinn tryggir m.a. Reykjanesbæ 17 milljóna króna árlegar tekjur af fasteignagjöldum núverandi bygginga á umræddu svæði  en um þreföldun við
fyrirhugaða stækkun bygginga, segir í fréttatilkynningu frá Reykjanesbæ. Gagnaverið hefur fengið um 180 þúsund fermetra svæði til umráða að Ásbrú. Verne Holding mun sjá um frágang gatna innan umrædd svæðis, segir ennfremur í tilkynningunni.