Fréttir | 9. júlí 2008 | 14:38:57
Fleiri íbúðir afhentar á Vallarheiði
Keilir hefur nú fengið 200 íbúðir í viðbót til úthlutunar á stúdentagörðunum á Vallarheiði.
Íbúðirnar eru staðsettar í Hlíðarhverfi og eru 3-5 herberga. Þeim fylgja eldavél, bakarofn, vifta og ísskápur. Rafmagn í íbúðunum er aðlagað að íslensku rafmangskerfi.
Starfsmenn Keilis ljúka við úthlutun á nýju íbúðunum á næstu dögum.Gert er ráð fyrir að íbúar á svæðinu verði 1700 í haust.
inga@vf.is
Vinsamlegast afritið kóðann hér að neðan: